![jona_kolbrunardottir Jóna G. Kolbrúnardóttir](http://kammerkor.is/wp-content/uploads/2024/02/jona_kolbrunardottir.jpg)
Aðventu- og jólatónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar verða haldnir í Hásölum, sal Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 4. desember og miðvikudaginn 5. desember kl. 20:00.
Sérstakir gestir kórsins á tónleikunum eru Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran og Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari.
Flutt verður úrval söng- og kórverka sem koma áheyrendum í hátíðarskap.
Að venju sitja tónleikagestir til borðs og þiggja kaffi og konfekt.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 og 1.500 fyrir eldri borgara.
Minnt er á að alltaf er hægt að gerast styrktarfélagi kórsins. Fyrir 6500 krónur fær styrktarfélagi tvo miða á næstu þrenna tónleika kórsins. Nánari upplýsingar og eyðublað eru á styrktarfélagasíðunni.
![Plakat_Nofont Upphaf aðventu í rólegheitum 2018](http://kammerkor.is/wp-content/uploads/2024/02/Plakat_Nofont.jpg)