Aðventu- og jólatónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar verða haldnir í Hásölum, sal Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 1. desember og miðvikudaginn 2. desember kl. 20.00.

Á tónleikunum syngur Kammerkórinn úrval aðventu- og jólalaga auk annarra söng- og kórverka og lofar að koma öllum í hátíðarskap.

Gestir kórsins að þessu sinni eru Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari.

Að venju sitja tónleikagestir til borðs og þiggja kaffi og konfekt í hléi.

Aðgangseyrir er kr. 2.000 og 1.500 fyrir eldri borgara.

Við minnum einnig á að alltaf er tekið við nýjum styrktarfélögum. Fyrir 6.000 krónur fær styrktarfélagi tvo miða á næstu þrenna tónleika kórsins. Þannig fæst hver miði á 1.000 krónur. Nánari upplýsingar eru á styrktarfélagasíðunni.

Það nýjasta

Deila á samfélagsmiðlum