Carmina Burana er kvæðasafn sem safnað er saman í tónaflokk um fallvaltleika gæfunnar. Kvæðin eru úr handriti frá 13. öld og eru eftir mörg skáld, sem er öll eru nafnlaus eins og höfundar Íslendingasagna. Sum eru kvæðin á latínu, önnur á þýsku og ljóst að höfundar verið stundum léttir á bárunni ef marka má innihald kvæðanna. Tónskáldið Carl Orff (1895-1982), raðaði saman kvæðum úr þessu safni og tónsetti. Verkið verður sett upp í uppfærslu fyrir 2 píanó, slagverkssveit, einsöngvara, barnakór, og kór.

Flytjendur í þessari uppfærslu eru Kammerkór Hafnarfjarðar, Ungmennakórinn Bergmál, Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, Kór Öldutúnsskóla og einsöngvararnir Bryndís Guðjónsdóttir sópran, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór og Jón Svavar Jósefsson baritón, ásamt píanó og slagverkssveit. Stjórnandi er Kári Þormar.

Miðasala er á tix.is

Viðburður fyrir tónleikana á Facebook

Carmina Burana - tónleikar 6. apríl 2025

Það nýjasta

Deila á samfélagsmiðlum