Hér með er boðað til aðalfundar hjá Kammerkór Hafnarfjarðar miðvikudaginn 10. apríl 2024 kl. 19:00 í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Dagskrá:
- Fundur settur. Val á fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2023 kynntur og lagður fram til samþykktar
- Kosning stjórnar (og skoðunarmanns reikninga)
- Kosning skemmtinefndar
- Önnur mál
- Fundargerð lesin og leiðrétt
- Fundi slitið
Samkvæmt ofanrituðu verða mikilvæg mál tekin fyrir á fundinum til ákvörðunar og umræðu og er hér með eindregið skorað á kórsöngvara að mæta á fundinn og taka þátt.
Boðað var munnlega til fundarins á kóræfingu miðvikudagskvöldið 3. apríl.
Stjórn Kammerkórs Hafnarfjarðar