Útgefið efni
Auk þess að hafa gefið út diskinn Gautede! hefur kórinn komið fram á fjórum öðrum geisladiskum:
Heilög messa
Heilög messa eftir Gunnar Þórðarson, við texta sr. Sigurðar Helga Guðmundssonar, var frumflutt í Víðistaðakirkju 1. janúar árið 2000 og kom diskurinn út síðar sama ár. Félagar úr kammerkórnum syngja ásamt félögum úr Kór Víðistaðasóknar, Álftaneskórnum og Kór Vídalínskirkju undir nafni Aldamótakórsins. Kammersveit Hafnarfjarðar leikur undir. Einsvöngvarar eru Þórunn Guðmundsdóttir og Sigurður Skagfjörð Steingrímsson, stjórnandi er Úlrik Ólason.
Það besta við jólin
Diskurinn Það besta við jólin inniheldur jólalög eftir Þórunni Guðmundsdóttur og kom út árið 2005. Á þessum diski syngur kórinn þrjú lög:
- Grýlukvæði
- Klundurjól
- Seinheppnir sveinar
Horfinn dagur – Árni Björnsson – Aldarminning
Diskurinn var gefinn út árið 2007 í tilefni af 100 ára afmæli Árna Björnssonar, tónskálds, tveimur árum áður. Þessi tvöfaldi diskur inniheldur nýjar og eldri upptökur af lögum eftir Árna Björnsson og syngur kammerkórinn þrjú þeirra:
- Mitt faðirvor
- Syng frjálsa land
- Enn eru jól
Enn er oft í koti kátt! – Lögin hans Friðriks Bjarnasonar
Þessi diskur var gefinn út í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar árið 2008. Á honum er að finna 28 lög eftir hafnfirska tónskáldið Friðrik Bjarnason. Auk kammerkórsins syngja þrír aðrir hafnfirskir kórar á diskinum: Kór Öldutúnsskóla, Kvennakór Öldutúns og Karlakórinn Þrestir.
Sjö af lögunum eru í flutningi kammerkórsins:
- Söngur sáðmannsins
- Blær
- Klukkurnar kalla
- Heiðarnar bíða
- Gef mér heiði himinn
- Farfuglar
- Næðingur
Auk þess syngja allir kórarnir saman lagið Hafnarfjörður, sem er n.k. þjóðsöngur Hafnarfjarðar.